Nú er Örninn kominn aftur á flug eftir sumarið. Alls mættu 132 á samveruna síðastliðinn miðvikudag. Stelpurnar frá KVAN komu og voru með hópefli fyrir yngri og eldri hópana okkar. Vigfús Bjarni hélt fyrirlestur fyrir fullorðna fólkið á meðan börnin tóku þátt í hópefli og föndri.
Þökkum þeim sem sáu sér fært að mæta og við hlökkum til áframhaldandi samverustunda ![]()
