Vorhátíð Arnarins var haldin í blíðunni þann 20. maí. Þar var hópnum skipt í minni hópa og talað um þá erfiðleika sem fylgir því að sakna þeirra sem hafa kvatt yfir sumartímann og í hverju söknuður felst. Því næst var farið út í sólina þar sem hoppukastalar og píluspjöld biðu barnanna, pylsur voru grillaðar og ís borinn fram í eftirrétt. Mikil gleði ríkti hjá krökkunum og þeim fannst einna skemmtilegast að skora á sjálfboðaliða í kapphlaup í hoppukastalanum. Að samverunni lokinni fengu sjálfboðaliðar síðan fræðslu frá Guðbrandi Ísberg sálfræðingi um skömm og ást. Þetta var afar gefandi fyrirlestur og þökkum við honum kærlega fyrir komuna.
Við í Erninum þökkum fyrir ljúfar samverustundir og hlökkum til haustsins sem færir okkur stöðugleika og rútínu á ný. Vonandi njóta allir vel yfir sumarið og birtan og fegurðin hjálpi þeim sem eru að takast á við sorgina.
