Á öskudaginn var haldin febrúar samvera Arnarins. Daníel Sæberg Hrólfsson kynnti Græna daginn 2.mars. Við ræddum hvernig tilfinningin samviskubit og sektarkennd geta vaknað í sorginni og Guðbrandur Árni Ísberg, sálfræðingur og rithöfundur, hélt erindi fyrir foreldra og forráðamenn um skömm og ást. Að sjálfsögðu var svo haldið partý og kötturinn sleginn úr tunnunni.
