Á degi barna í sorg, þann 19. nóvember bauð Örninn og Sorgarmiðstöð upp á fræðslu í hádeginu og minningarstund um eftirmiðdaginn. María Heimisdóttir landlæknir flutti erindi og Kirstín Erna Blöndal tónlistarkona flutti tónlist og fjallaði um gildi tónlistar í sálgæslu. Örn Arnarsson lék undir hjá Kirstínu Ernu.
Fræðslan var í beinu streymi og síðan var boðið upp á listasmiðju og afrakstur hennar var notaður í minningarstundinni um kvöldið. Föndruð voruð fiðrildi í minningu þeirra ástvina sem hafa kvatt. Minningarstundin var haldin í Vídalínskirkju þar sem Páll Óskar Hjálmtýsson flutti okkur tónlist ásamt undirleik Ásgeirs Ásgeirssonar. Frú Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands flutti ávarp fyrir hópinn. Júlía Klara Gunnarsdóttir og Freydís Katla Sveinsdóttir fyrrum þáttakendur í Erninum, deildu síðan reynslu sinni af systkinamissi á fallegan og hugljúfan hátt.
Viljum þakka öllum ungum syrgjendun og aðstendendum þeirra fyrir fallega stund ![]()
