Yngri hópurinn okkar hélt í ferðalag helgina 10-12. apríl upp í Vatnaskóg. Með í för voru 39 börn og 30 sjálfboðaliðar. Sólin skein á okkur og við gátum því notið þess að vera í fallegu náttúrunni og farið í göngu með kakó og kringlur.
Á hverjum degi áttum við samtöl um sorgina og börnin gátu því minnst þeirra sem þau misstu í öruggu og traustu umhverfi. Börnin fóru einnig í listasmiðju og hina ýmsu leiki í íþróttasalnum. Þau máluðu á greinar og steina, gerðu kerti og kórónur til minningar um ástvini sína.
Hápunktur ferðarinnar var kvöldvakan á laugardagskvöldinu, þar sem börnin og sjálfboðaliðarnir héldu uppi fjörinu í Gamla skálanum. Þar voru hin ýmsu atriði á dagskrá: Söngur, hljóðfæraleikur, leikrit, töfrabrögð og leikir. Síðan tók við kertastund eftir að rökkva tók, þar sem allir fóru með sína steina og kveiktu á kerti og áttu hugljúfa stund við kertaljósin.
Hópurinn var til fyrirmyndar alla helgina og vonandi verður þessi ferð ljós í minningu þeirra sem hafa kvatt.
Sjálfboðaliðar Arnarins fóru heim umvafin fallegum minningum og þakklæti 

